Aðalfundur: Karl Georg Klein endurkjörinn formaður 10.03.2021

Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar var haldinn þriðjudaginn, 9. mars 2021.

Helstu niðurstöður fundarins urðu þær að Karl Georg Klein var endurkjörinn formaður félagsins og Ragna Lilja Garðarsdóttir og Jón Víðar Jónsson voru kosnir í stjórn.

Kristín Garðarsdóttir, Fríða Kristín Jóhannesdóttir, Pálmey Magnúsdóttir og Tómas Gísli Guðjónsson sitja áfram. Þá voru Guðjón Guðnason og Gísli Johnsen endurkjörinn skoðunarmanna.

Skýrsla stjórnar var kynnt og samþykkt. Reikningar félagsins voru birtir skömmu fyrir fundinn og voru samþykktir með fyrirvara um áritun skoðunarmanna.

Sundfélag Hafnarfjarðar þakkar Aðalbjörg Óladóttir og Hálfdán Þorsteinsson sértaklega fyrir öflugt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.

Fundinn sóttu um 23 manns. Fundarstjóri var Hrafnkell Marínósson, formaður ÍBH, og ritari var Fríða Kristín Jóhannesdóttir.

Björn Sigurðsson, formaður SSÍ, óskaði fundinum til hamingju með allan árangur á síðasta árið.