Á þitt barn rétt á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk?
Is your child entitled to a special leisure grant? Information in English and various other languages
Sérstakur íþrótta- og tómstundastyrkur til viðbótar hefðbundnum frístundastyrk í boði til 1. mars 2021
Opið er fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum og er verkefnið hluti af aðgerðapakka vegna þeirra áhrifa sem Covid19 hefur haft m.a. á afkomu efnaminni heimila í landinu. Verkefnið hefur það að markmiði að jafna tækifæri þeirra fjölskyldna sem tekjulægri eru til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Vakin er athygli á því að umsóknarfrestur rennur út 1. mars 2021. Hægt er með mjög auðveldum hætti að kanna rétt til styrks á Island.is.
Styrkurinn er 45.000 á hvert barn
Hægt er að sækja um styrk fyrir börn sem fædd eru á árunum 2005-2014 og búa á heimili þar sem heildartekjur heimilisins voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars – júlí 2020. Styrkurinn er 45.000 kr. á hvert barn og er hægt er að nota hann til niðurgreiðslu á þátttökugjöldum vegna íþróttaiðkunar, tónlistarnáms eða annarra tómstunda. Sveitarfélögin annast afgreiðslu styrkumsókna eftir að búið er að kanna rétt til styrksins inni á Island.is
Frístundastyrkir Hafnarfjarðarbæjar – í boði fyrir öll börn á aldrinum 6-18 ára
Minnum samhliða á frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar fyrir öll börn og ungmenni á aldrinum 6-18 ára í virku íþrótta- og tómstundastarfi. Mánaðarlegur styrkur til lækkunar á þátttökugjöldum er 4.500.- kr á hvern iðkanda.