Jóhanna Elín lauk keppni á NÆM með flottu sundi 22.07.2016
Jóhanna Elín lauk keppni á NÆM með flottu sundi

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir úr SH var að koma í bakkann í 50m skriðsundi á NÆM í Tampere. Hún sigraði sinn riðilinn með tæplega sekúndu bætingu - fór á 27,22 en var skráð inn á 28,17. Jóhanna endaði í 6. sæti af 25 keppendum.
Hun synti rétt í þessu 100m skriðsund og vann sinn riðil á tímanum 1:00,04 - bæting upp á 1,25 sekúndur. Tíminn dugði í 10. sæti í greininni en því miður var hún dæmd úr leik fyrir að hreyfa sig á pallinum.