70 ára afmæli Sundfélags Hafnarfjarðar 07.10.2015

Sundfélag Hafnarfjarðar var stofnað 19. júní árið 1945 og fagnar 70 ára afmæli sínu þann 10. óktóber n.k., kl. 18.00 í Ásvallalaug.
Allir SH-ingar og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í viðburðunum á afmælisdaginn.
Húsið opnar kl:18:00 með ljúfum jazzleik, drykk og léttum veitingum. Um klukkan 18:30 verið farið í stuttu máli yfir sögu félagsins, ræðuhöld og félagar heiðraðir.
Uppi í veislusal félagsins verður myndasýning og sögusafn félagsins til sýnis.

f.h. Stjórn SH
Karl Georg Klein, formaður