Aðalfundur: Karl Georg Klein endurkjörinn formaður 08.03.2023

Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar var haldinn þriðjudaginn, 7. mars 2023.

Helstu niðurstöður fundarins urðu þær að Karl Georg Klein var endurkjörinn formaður félagsins og Andrea Helga Sigurðardóttir og Einar Þór Sigurjónsson voru kosnir í stjórn.

Fríða Kristín Jóhannesdóttir, Pálmey Magnúsdóttir, Jón Víðar Magnússon og Tómas Gísli Guðjónsson sitja áfram. Þá voru Guðjón Guðnason og Gísli Johnsen endurkjörinn skoðunarmanna.

Skýrsla stjórnar var kynnt og samþykkt. Reikningar félagsins voru birtir skömmu fyrir fundinn og voru samþykktir með fyrirvara um áritun skoðunarmanna.

Sundfélag Hafnarfjarðar þakkar Kristín Garðarsdóttir og Ragna Lilja Garðarsdóttir sértaklega fyrir öflugt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins.

Fundinn sóttu um 23 manns. Fundarstjóri var Elísabet Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri ÍBH, og ritari var Pálmey Magnúsdóttir.

Viktoría Gísladóttir, gjaldkeri og formaður dómarnefn SSÍ, óskaði fundinum til hamingju með allan árangur á síðasta árið.