Skriðsundsnámskeið Fullorðna
4 vikna námskeið 2x í viku
Þriðjudaga og Fimmtudaga, kl. 20.00-21.00 í Ásvallalaug.
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja læra eða bæta skriðsundstækni.
Þjálfari er Mladen Tepavcevic
Verð kr. 25.000
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja bæta sundfærni hjá sér og nýta sér sund sem heilsueflingu þar sem sund er frábær hreyfing fyrir alla. Námskeiðið hentar einnig frábærlega fyrir þá sem ætla sér lengra og eru að byrja undirbúa sig fyrir keppni í þríþraut eða aðrar keppnir sem sund kemur til sögu. Margir hafa líka komið til að undirbúa sig fyrir inntökupróf í lögregluskólann eða slökkviliðið.
Lengd námskeiðs eru fjórar vikur (8 skipti)
Takmarkaður fjöldi nemenda í hverjum hóp
Ef lámarks fjölda skráninga næst ekki fyrir upphaf námskeiðs fellur námskeið niður, þeir sem hafa þá greitt fá endurgreitt eða eiga inni næsta námskeið.
Næstu námskeið:
Nóvember: 4-30.
Janúar:
Febrúar:
Mars:
Þeir sem klára námskeiðið geta svo komið að prufa Garpana sem er sundhópur fyrir fullorðna sem æfa allan veturinn, einnig á þriðjudögum og fimmtudögum kl: 20:00-21:00. Garparnir eru ekki bara frábær heilsurækt tvisvar í viku heldur líka æðislegur félagsskapur.




