SH Íslandsmeistarar Aldursflokka 2026
- skrifstofa
- 2 days ago
- 1 min read
Sundfélag Hafnarfjarðar er Íslandsmeistari aldursflokka 2026
Sundfélag Hafnarfjarðar (SH) er Íslandsmeistari aldursflokka 2026. Þetta er fjórða árið í röð sem félagið hlýtur þennan eftirsótta titil.
Mótið fór fram dagana 19.–21. júní í Reykjanesbæ. SH sendi 39 keppendur til leiks sem sameinuðust um að safna stigum fyrir félagið og tryggðu með því glæsilegan sigur.
Sundfólk SH vann til samtals 16 gullverðlauna auk 43 silfur- og bronsverðlauna.
Stigahæstu sundkonur mótsins í sínum aldursflokkum voru:
Ásta Þórey Einarsdóttir (12–13 ára)
Auguste Balciunaite (14–15 ára)
Íslandsmeistarar aldursflokka:
Auguste Balciunaite (200m skrið, 100+200m bringa, 400+200m fjór)
Ásta Þórey Einarsdóttir (100m bringa, 200m skrið, 100m fjór)
Þór Eli Gunnarsson (200m bak)
Andrej Tepavcevic (800+400m skrið)
Sara Grecko (100m bak)
Halldór Ingi Ólafsson (100+200m bak, 200m bringa)
Daniil Emil Olegsson (100m fjór)
4x100m skrið 14-15 (Þór Eli, Travis, Aaron Sebastian, Andrej)
4x100m skrið 12-13 (Ásta Þórey, Gréta Líf, Elín Helga, Jovana)
4x100m fjór 14-15 (Þór Eli, Daniel, Andrej, Aaron Sebastian)
silfur og brons verðlaun í einstaklings- og boðsundsgreinum:
Auguste Balciunaite
Daniel Andryisson
Ásta Þórey Einarsdóttir
Þór Eli Gunnarsson
Aaron Sebastian Jóhannsson
Matthilda Lilja Larsen
Elín Helga Arnardóttir
Andrej Tepavcevic
Gréta Líf Ekstedt
Halldór Ingi Ólafsson
Daniil Emil Olegsson
Eva Goda Pratusyté
Alexander Örn Sveinsson
Viktor Tepavcevic
Sara Grecko
Við erum afar stolt af okkar sundfólki og óskum öllum keppendum innilega til hamingju með frábæran árangur á AMÍ 2026.







