top of page

SH sterkasta liðið á ÍM25🏆💙

skrifstofa
1 day ago
3 min read

Updated: 1 hour ago

Frábær helgi að baki hjá Sundfélagi Hafnarfjarðar á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug sem fór fram í Ásvallalaug dagana 13.–15. nóvember.


SH vann 36 af 46 Íslandsmeistaratitlum og sigraði í öllum 10 boðsundum mótsins!


Alls tóku 48 sundmenn frá SH þátt í mótinu og var sett fjölda af persónulegu bestu tímum, unnið til margra verðlauna og náð lágmörkum á sundmót.


SH endaði mótið vel þegar félagið tryggði sér öll þrjú sætin í síðasta boðsundi mótsins í 4x100m fjór karla.


🏆 Bestu afrek mótsins

Snorri Dagur Einarsson – 50 m bringusund á 27,04 sek. (785 stig)

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir – 50 m skriðsund á 25,04 sek. (757 stig)


🥇 17 Íslandsmeistarar frá SH

Adam Leó Tómasson– 100 m fjórsund, 1 boðsund

Alicja Julia Kempisty– 400 m, 200 m og 100 m skriðsund, 2 boðsund

Bergur Fáfnir Bjarnason– 200 m, 100 m og 50 m baksund, 3 boðsund

Birgitta Ingólfsdóttir– 50 m bringusund, 2 boðsund

Birnir Freyr Hálfdánarson– 200 m fjórsund, 4 boðsund

Ema Austa Pratusyté– 1 boðsund

Hólmar Grétarsson – 400 m skriðsund, 200 m flugsund og 400 m fjórsund, 1 boðsund

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir – 50 m skriðsund, 50 m og 100 m flugsund, 6 boðsund

Kajus Jatautas – 1 boðsund

Katja Lilja Andriysdóttir – 1500 m skriðsund, 1 boðsund

Magnús Víðir Jónsson – 200 m skriðsund, 2 boðsund

Nadja Djurovic – 4 boðsund

Símon Elías Statkevičius – 50 m skriðsund og 50 m flugsund, 4 boðsund

Snorri Dagur Einarsson – 50 m, 100 m og 200 m bringusund, 2 boðsund

Sólveig Freyja Hákonardóttir – 200 m flugsund, 400 m fjórsund og 800 m skriðsund, 3 boðsund

Vala Dís Cicero – 1 boðsund

Veigar Hrafn Sigþórsson – 100 m flugsund, 2 boðsund


10 SH sundmenn með lágmörk á NM 2026

Af 14 sundmönnum sem náðu lágmörkum á Norðurlandameistaramótið í desember eru 10 frá SH!

- Alicja Julia Kempisty – NM unglinga

- Aron Bjarki Pétursson

- Bergur Fáfnir Bjarnason

- Hólmar Grétarsson

- Jóhanna Elín Guðmundsdóttir

- Karl Björnsson

- Magnús Víðir Jónsson

- Símon Elías Statkevičius

- Snorri Dagur Einarsson

- Sólveig Freyja Hákonardóttir – NM unglinga


🥇 6 Íslandsmeistarar unglinga frá SH

Alicja Julia Kempisty – 400 m, 200 m og 100 m skriðsund

Auguste Balciunaite – 200 m bringusund

Hólmar Grétarsson – 400 m skriðsund, 200 m flugsund og 400 m fjórsund

Karl Björnsson – 100 m, 50 m og 200 m bringusund

Magnús Víðir Jónsson – 200 m skriðsund

Sólveig Freyja Hákonardóttir – 200 m flugsund, 400 m fjórsund og 800 m skriðsund


🥈🥉 Silfur- og bronsverðlaunahafar

Eftirtaldir sundmenn unnu einnig til silfur- og/eða bronsverðlauna í opnum flokki og/eða unglingaflokki:


Adam Leó Tómasson, Alicja Julia Kempisty, Andri Ólafsson, Arnór Egill Einarsson, Aron Bjarki Pétursson, Ásta Þórey Einarsdóttir, Auguste Balciunaite, Bergur Fáfnir Bjarnason, Birgitta Ingólfsdóttir, Birnir Freyr Hálfdánarsson, Dagmar Arna Sigurðardóttir, Ema Austa Pratusyté, Hólmar Grétarsson, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, Kajus Jatautas, Karl Björnsson, Katja Lilja Andriysdóttir, Magnús Víðir Jónsson, Nadja Djurovic, Símon Elías Statkevičius, Snorri Dagur Einarsson, Sólveig Freyja Hákonardóttir, Veigar Hrafn Sigþórsson og Þór Elí Gunnarsson.


Þrjú hafnarfjarðarmet voru einnig slegin um helgina.

Elín Helga Arnardóttir setti nýtt meyjamet í 200 m bringusundi á tímanum 2:50,02.

Hólmar Grétarsson setti nýtt Hafnarfjarðarmet í 200 m flugsundi á tímanum 1:59,20.

Jóhanna Elín Guðmundsdóttir setti nýtt Hafnarfjarðarmet í 50 m skriðsundi á tímanum 25,04.


Takk fyrir frábæra helgi!


Við óskum öllum okkar sundmönnum og þjálfurum innilega til hamingju með glæsilegan árangur og frábæra frammistöðu um helgina!


Einnig færum við öllum dómurum, starfsmönnum og sjálfboðaliðum bestu þakkir fyrir þeirra framlag til mótsins.


Áfram SH! 💙🏆



 
 
bottom of page