top of page

Aðalfundur - Karl Georg Klein endurkjörinn formaður

  • skrifstofa
  • 4 days ago
  • 1 min read

Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar var haldinn þriðjudaginn 10. mars 2026. Um 23 félagsmenn sóttu fundinn.

Helstu niðurstöður fundarins voru þær að Karl Georg Klein var endurkjörinn formaður félagsins.

Fríða Kristín Jóhannesdóttir og Jón Víðar Magnússon sitja áfram í stjórn. Pálmey Magnúsdóttir, Tómas Gísli Guðjónsson, Andrea Helga Sigurðardóttir og Einar Þór Sigurjónsson voru endurkjörin í stjórn. Þá voru Guðjón Guðnason og Gísli Johnsen endurkjörnir sem skoðunarmenn.

Skýrsla stjórnar var kynnt og samþykkt á fundinum. Reikningar félagsins voru birtir skömmu fyrir fund og voru samþykktir samhljóða.

Fundarstjóri var Aðalbjörg Óladóttir og ritari fundarins var Fríða Kristín Jóhannesdóttir.

Björn Sigurðsson, formaður SSÍ, ávarpaði fundinn og óskaði félaginu til hamingju með góðan árangur á síðasta ári.

 
 

Recent Posts

See All
bottom of page