top of page

2 ný mótsmet slegin um helgina á Ásmeginmótinu!

  • skrifstofa
  • 6 days ago
  • 1 min read

Ásmeginmót SH lauk núna á sunnudaginn um hádegisbil í Ásvallalaug í Hafnarfirði.

Mótið var fullt af góðum árangri; lágmörk á EM, EMU, NÆM og ÍM og hellingur af personal best tímum sáust hjá efnilegum sundmönnum.

270 sundmenn frá 15 félögum komu saman á mótinu. Alls voru 38 dómarar og 20 sjálfboðaliðar virkir og studdu við keppnina.

Bestu árangrar og stigahæstu sundmenn mótsins voru Birgitta Ingólfsdóttir (SH) í 100 m bringusundi á tímanum 1:10.01 (768 stig) og Snorri Dagur Einarsson (SH) í 50 m bringusundi á tímanum 28.51 (754 stig).

Snorri Dagur Einarsson og Birgitta Ingólfsdóttir syntu aftur undir lágmarki fyrir EM50 í París, bæði í 50 m bringusundi, sem haldið verður í ágúst.

Vala Dís Cicero, Sólveig Freyja Hákonardóttir og Hólmar Grétarsson syntu aftur undir lágmörkum fyrir EMU í München í júlí, og Alicja Julia Kempisty aftur undir lágmarki fyrir NÆM í júlí.

2 ný mótsmet voru sett:

Karla – 200 m flugsund Hólmar Grétarsson (SH) – 2:05.04

Kvenna – 50 m flugsund Jóhanna Elín Guðmundsdóttir (SH) – 28.04

Úrslit SH-inga

Frábærri keppni lauk með þátttöku 69 SH-sundmanna. Margir persónulegir bestir tímar voru bættir og margir sundmenn náðu lágmörkum á AMÍ, SMÍ, ÍM, EM, EMU og NÆM.


Til hamingju allir sundmenn!


 
 

Recent Posts

See All
Aðalfundur - Karl Georg Klein endurkjörinn formaður

Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar var haldinn þriðjudaginn 10. mars 2026. Um 23 félagsmenn sóttu fundinn. Helstu niðurstöður fundarins voru þær að Karl Georg Klein var endurkjörinn formaður félagsin

 
 
bottom of page