top of page
Verðskrá eftir hópum:
0. Stig
1x í viku.
Verð:
Haustönn 33.800 kr. Vorönn: 41.000 kr. Árgjald: 73.800 kr. Meðal á mánuði: 8.200 kr.
1-4 Stig
2x í viku.
Verð:
Haustönn: 58.600 kr. Vorönn: 72.000 kr. Árgjald: 129.600 kr. Meðal á mánuði 14.400 kr.
5. Stig
3x í viku.
Verð:
Haustönn: 65.000 kr. Vorönn: 80.000 kr. Árgjald: 144.000 kr. Meðal á mánuði 16.000 kr.
Háhyrningar
4x í viku.
Verð:
Haustönn: 75.000 kr. Vorönn: 105.000 kr. Árgjald: 175.000 kr. Meðal á mánuði: 17.500 kr.
Höfrungar
5-6 x í viku.
Verð:
Árgjald: 228.000 kr. Meðal á mánuði: 19.000 kr
Sverðfiskar
6-9x í viku.
Verð:
Árgjald 246.000 kr. Meðal á mánuði: 20.500 kr.
Megalodonar/ Marlinar /Hákarlar
7-12x í viku.
Árgjald 262.800 kr. Meðal á mánuði 21.900 kr.
Hákarlar Extra
6x í viku.
Verð:
Árgjald 192.000 kr. Meðal á mánuði 16.000
Sundknattleikur
3x í viku.
Verð: Árgjald 29.000 kr
Skriðsundsnámskeið
2x í viku.
Verð 25.000kr. - 8 skipti í 4 vikur.
Garpar
2x í viku.
Verð: Árgjald 29.000 kr.
Þríþraut
3x í viku.
Verð: 7.500 kr. á mánuði
Uppgjör æfingagjalda
Rukkað verður fyrir æfingagjöld fyrir heilt tímabil frá hausti til vors, frá þeim tíma sem barnið þitt byrjaði í sínum hóp og þar til æfingar enda næsta vor eða sumar. Möguleiki er á því að dreifa greiðslum á æfingagjöldum í jafn marga mánuði og æfingar standa yfir.
Inni falið í æfingargjöldum er félagsgjöld og þjónustugjöld SSÍ. Annar kostnaður eins og keppnisferðir, æfingarbúðir, æfingarbúnaður líkamsræktarkort og aðrar uppákomur þarf sundmaður að greiða aukalega.
Nigurgreiðsla Hafnarfjarðarbæjar
Mánaðarlegur styrkur Hafnarfjarðarbæjar til lækkunar á þátttökugjöldum er 4.750 kr. á hvern iðkanda frá 6-18 ára og 2.375 kr fyrir 5 ára börn.
Árið sem barn verður 5 ára byrjar það að fá styrk 1. janúar og hættir að fá styrk 31. desember árið sem það verður 18 ára. Ekki er hægt að fá þennan styrk nema einu sinni í hverjum mánuði. Styrkur er enn fremur ekki greiddur á tímabili þegar barnið er ekki æfa.
Nánar um frístundastyrk hér:
Systkinaafsláttur:
Systkinaafsláttur er 15%, og kemur fram í greiðslukerfi sportabler.
Greiðslufyrirkomulag
Forráðamenn barna sem hafa verið skráð í félagið munu fá sendan reikning samkvæmt því greiðslufyrirkomulagi sem viðkomandi valdi við skráningu. Hægt er að velja að greiða í einni greiðslu eða í jafn marar og mánuði sem æfingar standa yfir.
Við skráningu er barnið skráð þar til sundtímabilið lýkur í lok maí fyrir sundskóla SH 0-5, aðrir eldri hópar æfa lengur og eru skráð þar til æfingar fara í sumarfrí.
Uppsögn í lok hvers tímabils
Þegar barn er skráð og búið að ganga frá greiðslusamning þá er gjaldskylda þar til æfingar ljúka næsta vor. Það er þó hægt að segja upp æfingargjöldum í lok desember/ byrjun jan ef búið er að greiða helming æfingargjalda. Uppsögn verður þá að berast fyrir 15 janúar. Ekki er hægt að segja upp eftir það og er gjaldskylda til lok æfinga um vorið. Uppsögn skal berast í tölvupósti í netfangið.
Ef sundmaður hefur æft í minna en 2 vikur og sér að æfingarnar henta honum ekki getur hann hætt án þess að borga æfingagjöld.
ATH!
Sundfélag Hafnarfjarðar áskilur sér rétt til að fella niður námskeið og endurgreiða iðkendum, ef ekki fæst næg þátttaka
bottom of page




