SH er Íslandsmeistari sumarsins 2026!
- skrifstofa
- Jun 30
- 1 min read
SH er Íslandsmeistari í liðakeppni Sumarsins 2026!
Alls kepptu 49 sundmenn frá SH sem stóðu sig frábærlega á mótinu. Liðið átti glæsilega helgi með fjölda persónulegra meta, verðlaunasæta og Íslandsmeistaratitla. Sundfólk SH, 16 ára og eldra, safnaði flestum stigum í liðakeppninni og tryggði félaginu Íslandsmeistaratitilinn.
Stigahæstu einstaklingar
Konur
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir – 738 stig
Vala Dís Cicero – 725 stig
Birgitta Ingólfsdóttir – 709 stig
Karlar
Snorri Dagur Einarsson – 774 stig
Nýtt keppnisfyrirkomulag – „Skins“
Á mótinu var kynnt nýtt keppnisfyrirkomulag í öllum 50 metra greinum, svokallað „Skins“. Þar kepptu átta hröðustu sundmennirnir í fyrstu umferð, fjórir komust áfram í aðra umferð og að lokum kepptu tveir bestu um sigurinn.
Sundmenn SH unnu 7 af 8 greinum:
50 m bringusund – Birgitta Ingólfsdóttir og Snorri Dagur Einarsson
50 m baksund – Vala Dís Cicero
50 m flugsund – Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Birnir Freyr Hálfdánarsson
50 m skriðsund – Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Veigar Hrafn Sigþórsson
Innilegar hamingjuóskir til alls sundfólks SH fyrir frábæran árangur, metnað og liðsheild!
Jafnframt viljum við færa öllum sjálfboðaliðum, dómurum og starfsfólki okkar bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag. Sérstakar þakkir fær Pálmey Magnúsdóttir og hennar frábæra teymi sem setti saman glæsilegt lokahóf.
Áfram SH!









