top of page

Nýr yfirþjálfari í SH: Dadó Fenrir Jasminuson tekur við af Klaus

sh33332
Sep 10
1 min read

Eins og kvisast hefur út hefur Klaus Jürgen Ohk sagt upp starfi sínu sem yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Sundfélags Hafnarfjarðar.

Hann mun setjast í helgan stein og hengja upp SH sundfatnaðinn í lok október.

Í kvöld skrifaði Dadó Fenrir Jasminuson undir samning við félagið og mun taka formlega við sem nýr yfirþjálfari félagsins.

Þetta eru risa stórir skór sem Dadó ætlar að fylla upp í en hann er heldur betur tilbúinn í verkefnið og verður gaman að sjá hann taka við keflinu og stýra félaginu inn í framtíðina.

Innilega til hamingju með nýja titilinn elsku besti Dadó okkar og takk fyrir allt elsku Klaus án þín værum við svo sannarlega ekki besta sundfélag/fjölskylda á landinu. Fórnfýsi þín, skuldbinding, sem og uppeldi á fleiri sundkynslóðum er aðdáunarverð og hreint út einsdæmi


 
 
bottom of page