Mótanefnd
Þegar SH flutti í Ásvallalaug varð ljóst að koma þyrfti upp algjörlega nýju skipulagi á mótamál, þar sem stærri laug kallar á miklu fleiri starfsmenn á mótum. Var því skipuð mótanefnd með skýrri verkaskiptingu hópstjóra. Tilgangurinn með skipun nefndarinnar er fyrst og fremst að stytta fundasetu og gera alla meðvitaða um hlutverk sitt. Markmiðið er að undirbúningur og keyrsla móta sé sem áreynsluminnst og dreifing verkefna sé sem mest.
Hér fyrir neðan er listinn yfir hópstjórana, sem hafa síðan safnað fólki með sér til aðstoðar og er ekki ætlast til þess að þeir vinni alla vinnuna sjálfir.
Að vinna á mótum er skemmtileg leið til að kynnast bæði keppendum og foreldrum í SH og öðrum félögum. Þeim sem hafa áhuga á að taka þátt í störfum mótanefndar er bent á að hafa samband við formanninn eða viðkomandi hópstjóra.
Ingibjörg Ragnarsdóttir, formaður og verðlaun Karl Georg Klein, mótsstjórn og tækniherbergi
Kristín Pétursdóttir, eldhúsið
Foreldraráðið, sjoppan
Klaus-Jurgen Ohk, yfirþjálfari (Laust), ljósmyndarar
|