|
Sunddrottningar og sundkóngar Eftirfarandi grein var birt í 30 ára afmælisriti FH árið 1959 |
|
Fyrsta sundmót Hafnarfjarðar Fyrsta sundmót Hafnarfjarðar var haldið í tilefni af eins árs afmæli sundlaugarinnar árið 1944. Fimleikafélagi Hafnarfjarðar var falið að sjá um mótið. – Sund hafði ekki verið iðkað hér í Hafnarfirði, svo nokkru næmi, enda skilyrði lítil sem engin til þess, því sund var iðkað í sjónum og því ekki um æfingar að ræða nema um hásumarið. – Sundkeppnir höfðu þó verið háðar hér og fór ein þeirra fram í sjónum fyrir framan Íshús Hafnarfjarðar og einnig var keppt í sundi við gömlu hafskipabryggjuna og synt í áttina að nýju hafskipabryggjunni. |
|
Grímur heitinn Andrésson hafði gefið fagra bikara til að keppa um í 200 m sundi kvenna og karla. Bikurum þessum fylgir samkvæmt reglugerð sæmdarheitið Sunddrottning og Sundkóngur Hafnarfjarðar. – FH-ingar unnu þessa bikara á þessu fyrsta móti. Sunddrottning Hafnarfjarðar 1944 varð Þorgerður Gísladóttir FH, en Sundkóngur Halldór Baldvinsson FH. |
Árið eftir stofnaði Gísli Sigurðsson Sundfélag Hafnarfjarðar, og næstu tvö árin eru það FH og Sundfélagið, sem senda þátttakendur til mótsins. – FH-ingar báru bæði árin sigur af hólmi og unnu flestar greinar mótsins. 1945 varð Þorgerður Gísladóttir aftur Sunddrottning Hafnarfjarðar og Gunnar Þórðarson, sundkóngur Hafnarfjarðar. – Árið 1946 vinna FH-ingarnir, Sigrún Sigurbjörnsdóttir sunddrottningarnafnið en Björn Eiríksson sundkóngsnafnið. Eftir 1946 fellur Sundmót Hafnarfjarðar niður í nokkur ár, og varð það til þess að FH hætti að æfa sund, enda stór efi á, að eðilegt sé að tvö sundfélög séu starfandi í bænum. Þessi þrjú ár, sem FH sendi keppendur til Sundmóts Hafnarfjarðar, verða þá ávallt minnisstæð þeim, er tóku þátt í þeim, því að keppnin var mikil og hörð – og stolt hvers FH-ings að vera með FH-merkið í sundfötum sínum. Erlingur Kristensson skráði |