|
Sundfélag Hafnarfjarðar var stofnað 19. júní árið 1945 Stofnfundurinn var haldinn í Sjálfstæðishúsinu og var hann fjölsóttur og mikill áhugi meðal fundarmanna. Aðdragandinn að stofnun félagsins var að árið 1943 hafði sundlaugin við Krosseyrarmalir verið tekin í notkun og fóru upp frá því að heyrast raddir um að nauðsynlegt væri að stofna sundfélag í bænum. |
|
Árið 1959 var farið að æfa sundknattleik hjá félaginu og tók lið þess fyrst þátt í Íslandsmóti árið 1963. Síðan hefur sundknattleikur verið iðkaður hjá félaginu með nokkrum hléum. Árið 1989 urðu straumhvörf í starfsemi félagsins, þegar Suðurbæjarlaug var tekin í notkun. Þá fékk félagið aukna aðstöðu og æfingatíma sem fljótt skilaði góðum árangri og auknum áhuga fyrir sundinu. Erlendur þjálfari, Þjóðverjinn Klaus-Jürgen Ohk var ráðinn til félagsins árið 1992 og síðan Bretinn Brian Marshall sem tók við þjálfuninni árið 1996. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og félagið á í dag sterkustu sundsveit landsins, sem hefur verið nær ósigrandi á bikarmótum síðustu ára. Með tilkomu Suðurbæjarlaugar fékk félagið til afnota félagsaðstöðu í kjallara laugarinnar, auk þrekaðstöðu í suðurálmu. Þá hefur félagið fengið skrifstofuaðstöðu og aðgang að félagsaðstöðu í félagsálmu íþróttahússins við Strandgötu. Það sem uppá vantar er þó 50 metra laug og hefur keppnisfólk félagsins því einnig þurft að stunda æfingar í Kópavogslaug. Góðar horfur eru þó á að þar verði breyting á, því samkvæmt áætlunum bæjaryfirvalda stendur til að byggja nýja sundmiðstöð með 50 metra - tíu brauta innilaug á Ásvallasvæðinu á næstu árum. Úr kynningarriti ÍBH 2002 - Erlingur Kristensson |