Dómaranámskeið, miðvikudagur, 24. febrúar, Laugardalslaug 10.02.2016

Sæl öll.
Haldið verður dómaranámskeið í tengslum við vormót Fjölnis.
Bóklegi hluti námskeiðsins verður þann 24. febrúar í Pálsstofu á 2. hæð Laugardalslaugar.
Verkleg kennsla fer fram á vormóti Fjölnis 27. og 28. febrúar sem verður í Laugardalslaug. Þeir dómaranemar sem geta ekki verið á þessu móti geta beðið um að fá verklega kennslu á öðru móti í staðinn.
Leiðbeinendur verða Björn Valdimarsson og Jón Hjaltason yfirdómarar.

SH mun keppa á sundmót Fjölnis með yngri sundmenn.
Endilega sendið þetta áfram á ykkar félaga, foreldra og alla þá sem ykkur dettur í hug sem gætu haft áhuga á þessu námskeiði!
Vinsamlegast sendið skráningar fyrir 23. febrúar á netfangið:
[email protected]