Hrafnhildur í undanúrslit í 200 bringu 21.08.2014

Gleðin heldur áfram í Berlín

Hrafnhildur synti nú í morgun undanrásir í 200m bringusundi á tímanum 2.28,07 sem er hennar besti tími í morgunsundi á ferlinum.

Þessi tími kom henni í 10.sætið inn í undanúrslitin sem fara fram í dag klukkan 16 á íslenskum tíma.

Við hlökkum til að fylgjast með Hrafnhildi seinni partinn !