Kristín Pétursdóttir er nýr formaður 19.02.2010
(frá IBH.is): Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar var haldinn í gær fimmtudaginn 18. febrúar. Dagskráin hófst á því að Dr. Þórarinn Sveinsson dósent við Háskóla Íslands var með erindi um hreyfingu, heilsu og holdafar barna og unglinga. Eftir erindið fóru fram venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins. Kristín Pétursdóttir var kosinn nýr formaður félagsins, aðrir nýir í stjórn eru Guðmundur Rafn Bjarnason, Margrét Valgerður Pálsdóttir, Kristján Guðnason og Björgvin Björgvinsson. Ingibjörg Ragnarsdóttir og Karl Georg Klein halda áfram í stjórninni. ...  óskar nýjum formanni og stjórnarmönnum til hamingju með kjörið og velfarnaðar í starfi.