Aðalfundur SH 15.02.2010

Aðalfundurinn verður haldinn í Ásvallalaug kl. 19.30 fimmtudaginn 18. febrúar.

Dagskráin hefst á því að Dr. Þórarinn Sveinsson verður með erindið "Um hreyfingu, heilsu og holdarfar barna og unglinga."

Eftir erindið fara fram venjuleg aðalfundarstörf skv. lögum félagsins:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Formaður flytur skýrslu stjórnar.
3. Gjaldkeri gefur skýrslu um fjárhag félagsins og skulu reikningar liggja frammi endurskoðaðir af kjörnum skoðunarmönnum félagsins.
4. Umræða um skýrslu stjórnar og reikningar lagðir fram til samþykktar.
5. Nefndir gefa skýrslu (ef við á).
6. Kosið í fastar nefndir félagsins (ef við á).
7. Stjórnin leggur fram fjárhagsáætlun fyrir næsta ár.
8. Lagabreytingar.
9. Aðrar tillögur sem eru til afgreiðslu á fundinum.
10. Kosning stjórnar félagsins og félagslegra skoðunarmanna reikninga samkvæmt kafla merktum G. í lögum þessum.
11. Æfinga- og ársgjöld ákveðin.(Aðalfundi er heimilt að vísa þessu til stjórnar).
12. Önnur mál.
13. Fundarslit.

Gert verður kaffihlé á fundinum.

Í kafla G. segir um kosningu stjórnar og formanns

G. Stjórn félagsins.
1. Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum í aðalstjórn og tveimur mönnum í varastjórn. Störf stjórnar skiptast sem hér segir: Formaður, varaformaður, gjaldkeri, ritari, umboðsmaður ( sjá nánar un hlutverk umboðsmanns í reglugerð) og meðstjórnendur alls 7 manns.
2. Kosning stjórnar fer þannig fram: Formaður skal kosinn fyrstur til eins árs. Næst skulu kosnir tveir menn í aðalstjórn til tveggja ára. Þá skulu kosnir tveir menn í varastjórn til eins árs. Að lokum skal kjósa tvo félagslega skoðunarmenn reikninga. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.

Einungis þrír stjórnarmenn gefa kost á sér til áframhaldandi setu, því þarf að kjósa fjóra nýja fulltrúa.

Stjórn SH