Miðvikudaginn 17. febrúar, kl. 19:15-20:30, mun Sjósundnefnd Sundsambands Íslands í samstarfi við SJÓR halda mikilvægan fyrirlestur um ofkólnun.
Fyrirlesturinn fer fram í HR við Nauthólsvík, fyrirlestrarsalnum Betelgás, stofu V1.02, sjá leiðarlýsingu á mynd.
Þar munum við heyra um reynslu af ofkólnun, um aðkomu að ofkólnun, um ofkólnun vs. hjarta og æðakerfi, um rannsóknir og um fyrstu viðbrögð.
Það er mikið öryggisatriði að sem flest sjósundsfólk fræðist um þetta. Við vitum aldrei hvenær óhöppin verða og fyrstu viðbrögð eru mikilvægust. Við hvetjum sem flesta til að mæta, það gerir okkur öll öruggari í sjónum.
