Sundmessa Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði 14. febrúar kl. 11 í Ásvallalaug 11.02.2010







Ástjarnarkirkja verður með messu í Ásvallalaug sunnudaginn 14. feb. kl. 11.


Börn úr Sundfélagi Hafnarfjarðar og Sundfélaginu Fjörður taka þátt.


Kirkjukórinn syngur á sundlaugarbakkanum undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Séra Bára Friðriksdóttir talar um blessun vatnsins og félagar úr sóknarnefnd lesa ritningatexta. Að lokum verður sprellað í lauginni.


Kirkjugestir verða í litlu lauginni eða pottum og geta slakað á á meðan himnesk blessun svífur yfir. Það væri gaman að fá sem flesta með okkur í laugina þennan morgun.


 


Sunnudagaskólinn á sama tíma í Ástjarnarkirkju.


Kötturinn sleginn úr tunnunni.


 


                                               Sóknarnefnd og sóknarprestur